Persónuvernd

Persónuverndarstefna Vínklúbbsins

Okkur er annt um persónuupplýsingarnar þínar. Hér útskýrum við á einföldu máli hvaða upplýsingum við söfnum, í hvaða tilgangi, hverjir fá þær og hvaða rétt þú átt.

1. Hver ber ábyrgð á upplýsingunum

Ábyrgðaraðili er Thor-Langlo ApS, sem rekur Vínklúbbinn og vefverslunina vinklubburinn.is.

Thor-Langlo ApS CVR-númer 43676512 Løvetandsvej 31, st. tv., 2700 Brønshøj, Danmörku Netfang: vinklubburinn@vinklubburinn.is

Ef þú hefur spurningar um persónuvernd eða vilt nýta réttindi þín skaltu senda okkur tölvupóst á vinklubburinn@vinklubburinn.is.

2. Hvaða upplýsingum söfnum við

Þegar þú skráir þig í áskrift eða verslar hjá okkur söfnum við:

  • nafni, netfangi, símanúmeri og heimilisfangi;
  • afhendingarvali, það er hvaða afhendingarstað Dropp þú velur eða hvort þú viljir fá sent heim;
  • upplýsingum um áskriftina, pantanir, greiðslur og afhendingar;
  • staðfestingu á því að þú hafir náð 20 ára aldri;
  • síðustu fjórum tölustöfunum í kortanúmerinu og gildistíma kortsins. Fullt kortanúmer er geymt hjá greiðsluþjónustunni, ekki hjá okkur;
  • samskiptum okkar við þig, til dæmis tölvupósti til þjónustuversins;
  • samþykki þínu fyrir markpósti, ef þú hefur gefið það.

Þegar þú heimsækir vefinn notum við aðeins nauðsynlegar vafrakökur, fyrir innskráningu og körfuna. Við notum ekki vafrakökur til að fylgjast með því hvernig þú notar vefinn. Sjá 8. grein.

3. Í hvaða tilgangi notum við upplýsingarnar og á hvaða grundvelli

Til að efna samninginn við þig: taka við pöntunum, skuldfæra áskriftina, senda kassann, senda áminningu fyrir greiðslu, kvittun og aðrar tilkynningar um áskriftina og veita þjónustu.

Til að uppfylla lagaskyldu: til dæmis bókhaldsskyldu og bann við sölu áfengis til þeirra sem eru yngri en 20 ára.

Vegna lögmætra hagsmuna okkar: til að svara fyrirspurnum, koma í veg fyrir svik og misnotkun og bæta vefinn og þjónustuna.

Með samþykki þínu: til að senda þér markpóst og fréttabréf. Þú getur afturkallað samþykkið hvenær sem er með hlekk neðst í hverjum pósti eða með því að senda okkur línu.

Tilkynningar sem tengjast áskriftinni, svo sem áminning fyrir greiðslu, kvittun og tilkynning um kort sem er að falla úr gildi, teljast ekki markpóstur og eru sendar svo lengi sem þú ert í áskrift.

4. Hverjir fá upplýsingarnar

Við seljum aldrei persónuupplýsingar. Við deilum þeim aðeins með fyrirtækjum sem hjálpa okkur að reka Vínklúbbinn og þá aðeins þeim upplýsingum sem þau þurfa á að halda:

  • Kling ehf.: áskriftar- og greiðslukerfi. Heldur utan um áskriftina, greiðslur, kvittanir og tilkynningar.
  • Rapyd: færsluhirðir sem annast kortagreiðslur og geymir kortaupplýsingar.
  • Dropp: flutningsaðili sem afhendir kassana. Fær nafn, símanúmer, heimilisfang og netfang.
  • Postmark: sendir tölvupóst sem tengist áskriftinni og pöntunum.
  • Klaviyo: sendir markpóst og fréttabréf, aðeins ef þú hefur samþykkt það.
  • Meta Platforms: mælir árangur auglýsinga á Facebook og Instagram. Þegar þú pantar eða staðfestir skráningu á póstlistann sendum við Meta netfangið þitt og símanúmer á dulkóðuðu formi, ásamt upphæð pöntunar, IP-tölu og upplýsingum um vafrann. Engar vafrakökur eru notaðar til þess.
  • Neon, Cloudflare og Vercel: hýsing vefsins og gagnagrunnsins á evrópsku svæði.
  • Google Workspace og Missive: tölvupóstur og þjónustuver.
  • Shopify: núverandi vefverslunarkerfi okkar, þar til við flytjum vefverslunina yfir í nýtt kerfi.

Sumir þessara aðila vinna upplýsingarnar eingöngu fyrir okkur og samkvæmt fyrirmælum okkar. Aðrir, svo sem færsluhirðirinn og flutningsaðilinn, geta einnig borið sjálfstæða ábyrgð á hluta vinnslunnar, til dæmis vegna eigin lagaskyldu.

Við gætum einnig þurft að afhenda upplýsingar ef lög krefjast þess, til dæmis skattyfirvöldum eða lögreglu.

5. Flutningur út fyrir Evrópska efnahagssvæðið

Sumir þjónustuaðilar okkar eru með höfuðstöðvar eða starfsemi utan Evrópska efnahagssvæðisins, til dæmis í Bandaríkjunum. Þegar upplýsingar eru fluttar þangað byggist flutningurinn á viðeigandi verndarráðstöfunum samkvæmt persónuverndarreglugerðinni, til dæmis ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB um fullnægjandi vernd eða stöðluðum samningsákvæðum.

6. Hversu lengi geymum við upplýsingarnar

Við geymum upplýsingarnar á meðan þú ert í áskrift eða í viðskiptum við okkur og síðan eins lengi og nauðsynlegt er miðað við þann tilgang sem þeim var safnað í.

Bókhaldsgögn, svo sem upplýsingar um pantanir, greiðslur og kvittanir, eru geymd í sjö ár samkvæmt lögum um bókhald nr. 145/1994.

Upplýsingar sem tengjast markpósti geymum við þar til þú afturkallar samþykki þitt.

7. Réttindi þín

Þú átt rétt á því að:

  • fá að vita hvaða upplýsingar við höfum um þig og fá afrit af þeim;
  • fá rangar upplýsingar leiðréttar;
  • fá upplýsingum eytt, nema okkur sé skylt að geyma þær, til dæmis vegna bókhalds;
  • takmarka vinnslu eða andmæla henni;
  • fá upplýsingarnar afhentar á tölvutæku formi til að flytja þær annað;
  • afturkalla samþykki hvenær sem er.

Sendu okkur línu á vinklubburinn@vinklubburinn.is og við svörum eins fljótt og auðið er, í síðasta lagi innan mánaðar.

Ef þú telur að við förum ekki rétt með upplýsingarnar þínar getur þú kvartað til Datatilsynet, persónuverndarstofnunar Danmerkur (datatilsynet.dk), þar sem við erum danskt fyrirtæki. Ef þú býrð á Íslandi getur þú einnig leitað til Persónuverndar (personuvernd.is).

8. Vafrakökur

Vefurinn notar aðeins vafrakökur sem eru nauðsynlegar til að hann virki: innskráningarköku sem viðheldur innskráningu þinni á Mínum síðum og körfuna, sem vafrinn þinn geymir svo að hún haldist milli síðna. Við notum engar vafrakökur til að fylgjast með ferðum þínum eða mæla árangur auglýsinga, hvorki okkar eigin né annarra, og þess vegna birtum við engan glugga þar sem beðið er um samþykki fyrir vafrakökum. Þú getur eytt vafrakökum í stillingum vafrans hvenær sem er.

9. Öryggi

Við verndum upplýsingarnar þínar með viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum. Aðeins þeir sem þurfa á upplýsingunum að halda starfs síns vegna hafa aðgang að þeim.

10. Börn

Við seljum ekki áfengi þeim sem eru yngri en 20 ára og söfnum ekki vitandi vits upplýsingum um þá.

11. Breytingar

Við kunnum að uppfæra þessa stefnu. Nýjasta útgáfan er alltaf aðgengileg á vinklubburinn.is. Ef breytingarnar skipta þig máli látum við þig vita með tölvupósti.